Guðlaugur Victor í liði vikunnar

Guðlaugur Victor Pálsson varð bikarmeistari á síðustu leiktíð.
Guðlaugur Victor Pálsson varð bikarmeistari á síðustu leiktíð.

Guðlaugur Victor Pálsson fer heldur betur vel af stað með Zürich í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann var valinn maður leiksins í 2:1-sigri á FC Thun í 1. umferðinni um helgina og nú hefur hann verið valinn í lið vikunnar af Blick.

Victor spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar. „Íslend­ing­ur­inn vel vak­andi,“ var meðal þess sem seg­ir í um­fjöll­un Blick eft­ir leik­inn en Guðlaugi tókst m.a. að bjarga frá­bær­lega á línu eft­ir gott skalla­færi Denn­is Hediger í liði Thun og sá til þess að bikar­meist­ar­arn­ir frá því í fyrra hófu tíma­bilið á þrem­ur stig­um.

Næsti leikur Zürich er á móti Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum í Grasshopper. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert