N´Zonzi á leiðinni til Roma

Steven N´Zonzi varð heimsmeistari með Frakklandi í sumar.
Steven N´Zonzi varð heimsmeistari með Frakklandi í sumar. AFP

Franski knattspyrnumaðurinn Steven N´Zonzi er á leiðinni til Roma. Þetta kemur fram á Twitter-aðgangi félagsins. N´Zonzi er lentur í Róm og er á leiðinni í læknisskoðun. Sky Italia segir að kaupverðið sé í kringum 28-30 milljónir evra.

N´Zonzi, sem spilar á miðjunni, kemur frá Sevilla en þar hefur hann verið alger lykilmaður undanfarin þrjú ár. Þar áður spilaði hann á Englandi með Stoke og Blackburn. N´Zonzi varð í sumar heimsmeistari með franska landsliðinu þar sem hann kom við sögu í fimm af sex leikjum liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert