Kolbeinn á förum frá Nantes?

Kolbeinn kom lítið við sögu á síðustu leiktíð.
Kolbeinn kom lítið við sögu á síðustu leiktíð. Ljósmynd/@FcNantes

Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson er ekki í leikmannahópi hjá franska félagi sínu, Nantes, annað sinn í röð er liðið leikur sinn annan leik í efstu deild á tímabilinu, nú gegn Rúnari Alex Rúnarssyni og félögum í Dijon.

Kol­beinn var aðeins byrjaður að koma við sögu hjá liðinu und­ir lok síðustu leiktíðar en hann hafði þá lítið sem ekk­ert spilað síðan 2016 vegna meiðsla sem voru ná­lægt því að binda enda á fer­il­inn. Í einhverjum frönskum miðlum er sagt frá því að Kolbeinn sé einn þeirra leikmanna sem megi finna sér annað félag áður en félagsskiptaglugganum verður lokað í lok mánaðar.

Rúnar Alex var í marki Dijon sem vann 2:1-útisigur á Montpellier í fyrstu umferð frönsku efstu deildarinnar og verður væntanlega í eldlínunni með liði sínu í kvöld er Nantes kemur í heimsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert