Svava Rós Guðmundsdóttir var á skotskónum fyrir Røa er liðið þurfti að sætta sig við 5:3-tap fyrir Sandviken á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Svava jafnaði leikinn fyrir Røa í 1:1 á elleftu mínútu.
Svava hefur leikið vel með Røa á leiktíðinni og skoraði níu mörk í þrettán deildarleikjum. Røa er í áttunda sæti af tólf liðum með 17 stig eftir 15 leiki.
Sigríður Lára Garðarsdóttir lék sinn fyrsta leik með toppliði Lillestrøm sem vann 2:0-sigur á Arna-Bjørnar á heimavelli sínum. Sigríður byrjaði á varamannabekknum en lék síðustu sextán mínúturnar.
Lillestrøm er með tólf stiga forskot á toppi deildarinnar og hefur unnið alla fimmtán leiki sína til þessa.