Barcelona hækkar laun Busquets

Busquets í leik með spænska landsliðinu.
Busquets í leik með spænska landsliðinu. AFP

Miðjumaðurinn Sergio Busquets hefur náð samkomulagi við knattspyrnuliðið Barcelona þess eðlis að laun hans munu hækka.

Tæknilega séð er ekki um nýjan samning að ræða, en Busquets skrifaði nýlega undir nýjan samning, heldur vill Barcelona sýna honum svart á hvítu hversu mikils hann er metinn hjá félaginu.

Samningstíminn er því enn þá sá sami, en hann rennur út árið 2021. Barcelona hefur möguleika á að framlengja hann til 2023.

Marca segir að laun Busquets hafi verið hækkuð rausnarlega og að hann sé núna næstlaunahæsti leikmaður Barcelona á eftir Lionel Messi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert