Miralem Pjanic hefur framlengt samning við ítalska knattspyrnufélagið Juventus en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag. Pjanic skrifaði undir fimm ára samning við Juventus en hann er 28 ára gamall.
Pjanic kom til Juventus frá Roma árið 2016 og hefur hann unnið ítölsku A-deildin í tvígang með félaginu. Þá varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2017 og 2018. Hann var sterklega orðaður við Chelsea fyrr í sumar en nú er ljóst að hann verður áfram hjá ítalska félaginu, næstu árin.