Tveir snillingar í sérflokki

Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo. AFP

Lionel Messi dró á Cristiano Ronaldo á listanum yfir markahæstu leikmenn í sögu Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær þegar hann skoraði þrennu gegn PSV í 4:0 sigri Barcelona.

Þetta var 48. þrennan hjá Messi á ferlinum og sú áttunda í Meistaradeildinni en hann hefur skorað 17 mörkum færra en Ronaldo í Meistaradeildinni.

Ronaldo hefur skorað samtals 120 mörk fyrir Manchester United og Real Madrid en í kvöld spilar hann með sínu þriðja liði í Meistaradeildinni þegar Juventus mætir Valencia á útivelli.

Markahæstu leikmenn í sögu Meistaradeildarinnar:

Cristiano Ronaldo – 120

Lionel Messi – 103

Raul – 71

Ruud van Nistelrooy – 56

Karim Benzema – 56

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert