Ramos bætti vafasamt met

Sergio Ramos fær gula spjaldið hjá hollenska dómaranum Bjorn Kuipers …
Sergio Ramos fær gula spjaldið hjá hollenska dómaranum Bjorn Kuipers í gærkvöld. AFP

Sergio Ramos, fyrirliði Evrópumeistara Real Madrid, bætti vafasamt met í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu þegar Real Madrid vann öruggan 3:0 sigur gegn Roma á Santiago Bernabeu-leikvanginum í Madrid í gær.

Ramos, sem þykir harður í horn að taka, fékk sitt 37. gula spjald í Meistaradeildinni og er nú sá leikmaður sem hefur fengið flest gulu spjöldin í Meistaradeildinni.

Ramos hefur 37 sinnum fengið að líta rauða spjaldið en fyrir leikinn í gær höfðu hann og Paul Scholes, fyrrverandi leikmaður Manchester United, fengið gula spjaldið 36 sinnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert