Frederik hélt hreinu í fyrsta sigrinum

Frederik Schram hélt hreinu.
Frederik Schram hélt hreinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frederik Schram og félagar í danska B-deildarliðinu Roskilde unnu loks sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu. Roskilde fékk þá heimsókn frá Hvidovre og vann öruggan 3:0-sigur í 10. umferðinni. 

Frederik lék allan leikinn í markinu hjá Roskilde og hélt hreinu í fyrsta skipti síðan í fyrstu umferðinni. Roskilde er enn í neðsta sæti deildarinnar, nú með sex stig, þremur stigum frá öruggu sæti. 

Ingvar Jónsson lék einnig allan leikinn í marki Viborg í 3:3-jafntefli við Thisted í sömu deild. Viborg er í 2. sæti deildarinnar með 19 stig, þremur minna en topplið Køge.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert