Helgi Mikael dæmdi í Svíþjóð

Helgi Mikael Jónasson dómari lætur til sín taka í leik …
Helgi Mikael Jónasson dómari lætur til sín taka í leik hér á landi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnudómarinn Helgi Mikael Jónasson var í eldlínunni í Svíþjóð í gær, en um er að ræða verkefni um norræn dómaraskipti knattspyrnusambanda Norðurlandanna.

Helgi dæmdi leik Falkenberg og Jönköping Södra í sænsku B-deildinni, en auk hans var Gylfi Tryggvason annar aðstoðardómara leiksins.

Falkenberg vann leikinn 2:0, en síðara markið kom úr vítaspyrnu sem Helgi dæmdi þegar skammt var til leiksloka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert