Knattspyrnufólk ársins útnefnt í kvöld

Luka Modric er tilefndur í kjöri á knattspyrnumanni ársins.
Luka Modric er tilefndur í kjöri á knattspyrnumanni ársins. AFP

Alþjóðaknattspyrnusambandið mun í kvöld útnefna besta knattspyrnufólk heims og valið verður kunngert á hófi í Royal Festival Hall í London.

Í karlaflokki eru Egyptinn Mohamed Salah, Portúgalinn Cristiano Ronaldo og Króatinn Luka Modric tilnefndir en í fyrsta skipti í 12 ár er Argentínumaðurinn Lionel Messi ekki einn af þeim þremur sem er tilefndur.

Í kvennaflokki eru tilnefndar þær Ada Hegerberg frá Noregi, hin franska Dzsenifer Marozsan og Marta frá Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert