Levski Sofia vann sannfærandi 6:0-útisigur á C-deildarliðinu Atletic Kuklen í búlgörsku bikarkeppninni í fótbolta í dag. Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn fyrir Levski Sofia.
Levski Sofia fór alla leið í úrslit keppninnar á síðustu leiktíð en tapaði þar fyrir grönnum sínum í Slavio Sofia í vítaspyrnukeppni. Hólmar og félagar hafa farið vel af stað á tímabilinu og er liðið efst í deildinni ásamt CSKA Sofia með 22 stig eftir níu umferðir.
Liðinu mistókst hins vegar að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar eftir óvænt tap fyrir Vaduz frá Liechtenstein í forkeppninni.