Griezmann kom Frökkum til bjargar

Antoine Griezmann fagnar sigurmarki sínu.
Antoine Griezmann fagnar sigurmarki sínu. AFP

Frakkland hafði betur gegn Þjóðverjum í stórleik í 1. riðli í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld, 2:1, eftir að Þjóðverjar komust yfir í fyrri hálfleik. 

Toni Kroos kom þýskum yfir úr vítaspyrnu á 14. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Frakkar voru hins vegar ekki af baki dottnir og Antoine Griezmann jafnaði á 62. mínútu með skalla. 

Griezmann var aftur á ferðinni á 80. mínútu er hann skoraði úr vítaspyrnu og tryggði Frökkum góðan sigur. Frakkar eru í efsta sæti riðilsins með sjö stig, Hollendingar í öðru með þrjú og Þjóðverjar á botninum með aðeins eitt stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert