Alfreð byrjaði í jafntefli

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg í þýsku 1. deildinni …
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg í þýsku 1. deildinni í dag. AFP

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem gerði markalaust jafntefli við RB Leipzig í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í Augsburg í dag. Gestirnir frá Leipzig voru sterkari aðilinn í leiknum og áttu ellefu marktilraunir gegn fimm marktilraunum Augsburg.

Alfreð var skipt af velli á 58. mínútu en hann hefur skorað fjögur mörk í þremur leikjum með Augsburg í þýsku 1. deildinni á þessari leiktíð. Augsburg er í áttunda sæti deildarinnar með 9 stig eftir fyrstu átta leiki sína, einu stigi frá Evrópusæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert