Enn heldur Kári hreinu

Kári Árnason hjálpaði til við að halda hreinu.
Kári Árnason hjálpaði til við að halda hreinu. AFP

Kári Árnason og liðsfélagar hans í tyrkneska B-deildarliðinu Genclerbirligi gerðu í dag markalaust jafntefli á móti Adanaspor á heimavelli. Leikurinn er sá fyrsti sem Genclerbirligi vinnur ekki á tímabilinu. 

Kári lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá sínum mönnum og hjálpaði til við að halda hreinu. Genclerbirligi er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið aðeins búið að fá á sig tvö deildar mörk í níu leikjum og leikið fimm leiki í röð án þess að fá á sig mark. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert