Bolt boðinn samningur í Ástralíu

Usain Bolt.
Usain Bolt. AFP

Ástralska knattspyrnuliðið Central Coast Mariners hefur boðið Usain Bolt, margföldum heims- og ólympíumeistara í 100 og 200 metra hlaupi, samning við félagið að sögn umboðsmanns hans.

Bolt, sem lagði hlaupaskóna á hilluna í fyrra eftir magnaðan feril, hefur verið til reynslu hjá Central Coast Mariners frá því í ágúst og skoraði tvö mörk í leik með liðinu á dögunum.

Bolt, sem er áttfaldur ólympíumeistari, hafnaði í síðustu viku samningstilboði frá Valletta frá Möltu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert