Birkir í vandræðum

Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. Ljósmynd/avfc.co.uk

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason verður ekki með Aston Villa í borgarslagnum gegn Birmingham City þegar liðin mætast í ensku B-deildinni í knattspyrnu á sunnudaginn

„Birkir er í smá erfiðleikum. Hann þjáist af vöðvaverkjum í kringum nárann. Hann hefur ekkert æft síðustu vikurnar svo við verðum að bíða og sjá til með hann,“ segir Dean Smith, knattspyrnustjóri Aston Villa, á vef félagsins.

Birkir fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í leik með Villa gegn QPR í lok október og hefur ekkert spilað síðan. Hann var í landsliðshópnum fyrir leikina á móti Belgíu og Katar en meiðslin í náranum komu í veg fyrir að hann gæti spilað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert