Þrenna hjá Messi í stórsigri

Lionel Messi var óstöðvandi í kvöld.
Lionel Messi var óstöðvandi í kvöld. AFP

Lionel Messi og samherjar hans hjá Barcelona áttu ekki í miklum erfiðleikum með að vinna 5:0-útisigur á Levante í efstu deild Spánar í fótbolta í kvöld. Messi var sjóðandi heitur og skoraði þrjú mörk. 

Messi er nú kominn með fimm mörk í síðustu tveimur deildarleikjum. Luis Suárez kom Barcelona yfir á 35. mínútu og tveimur mínútum fyrir hálfleik skoraði Messi. Argentínumaðurinn var svo aftur á ferðinni tveimur mínútum eftir hálfleik og staðan orðin 3:0. 

Messi skoraði þriðja markið sitt og fjórða mark Barcelona á 60. mínútu og tveimur mínútum fyrir leikslok lagði hann upp mark á Gerad Piqué sem gulltryggði stórsigur. 

Barcelona er með 34 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum meira en Sevilla og Atlético Madríd. Real Madrid er svo í fjórða sæti með 29 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert