Kjartan Henry til Vejle

Kjartan Henry Finnbogason skrifaði undir eins árs samning við Vejle …
Kjartan Henry Finnbogason skrifaði undir eins árs samning við Vejle í dag. Ljósmynd/@Vejle_B

Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason er genginn til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið Vejle í Danmörku en þetta staðfesti félagið á Twitter-síðu sinni í dag. Kjartan skrifaði undir eins árs samning við Vejle en hann gekk til liðs við ungverska liðið Ferencváros síðasta sumar en hann átti ekki fast sæti í liðinu á þessari leiktíð.

Fleiri lið sýndu Kjartani áhuga en hann var með tilboð frá liðum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en ákvað að lokum að snúa aftur til Danmerkur þar sem hann þekkir vel til. Hann lék með Horsens í Danmörku í fjögur ár á árunum 2014 til ársins 2018. Hann er uppalinn hjá KR í Vesturbænum.

Kjartan á að baki 11 landsleiki þar sem hann hefur skorað tvö mörk. Vejle er í 13. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eða næstneðsta sæti deildarinnar með 16 stig eftir fyrstu 20 umferðir dönsku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert