Kristófer hetja Willem II

Kristófer Ingi Kristinsson.
Kristófer Ingi Kristinsson. Ljósmynd/Willem II

Kristófer Ingi Kristinsson skaut Willem II í undanúrslit hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Willem II vann 3:2 útisigur á Twente í átta liða úrslitunum og skoraði Kristófer Ingi sigurmarkið með skallamarki á 86. mínútu, tólf mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Kristófer Ingi, sem er 19 ára gamall, hefur komið við sögu í níu leikjum Willem II í deildinni og hefur í þeim skorað eitt mark. Kristó­fer lék með Stjörn­unni áður en hann fór til Hol­lands árið 2016.  Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, samtals 32 leiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert