Dagný og Gunnhildur í sigurliðum

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og stöllur í Utah Royals komust á toppinn í bandarísku NWSL-deildinni í knattspyrnu eftir 2:0-sigur á Orlando Pride í nótt. Þá var Dagný Brynjarsdóttir einnig í sigurliði í Bandaríkjunum í nótt er lið hennar, Portland Thorns, vann 1:0-gegn Sky Blue í sömu deild.

Báðar voru þær í byrjunarliðum sinna liða og léku allan leikinn en Utah Royals er sem fyrr segir á toppi deildarinnar með 13 stig eftir fyrstu sex umferðirnar. Portland Thorns situr í þriðja sætinu með 11 stig.

Dagný Brynjarsdóttir (númer 10).
Dagný Brynjarsdóttir (númer 10). mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert