Barcelona búið að kaupa Neto

Neto er kominn til Barcelona.
Neto er kominn til Barcelona. Ljósmynd/Valencia

Spánarmeistarar Barcelona hafa náð samkomulagi við Valencia um kaup á brasilíska markverðinum Neto.

Neto, sem heitir fullu nafni Norberto Murara, er ætlað að fylla skarð Hollendingsins Jespers Cillessens sem er genginn til liðs við Valencia.

Neto gerir fjögurra ára samning við Neto og greiðir fyrir hann 26 milljónir evra sem getur hækkað í 35 milljónir evra við tiltekinn fjölda leikja með liðinu.

Neto er 29 ára gamall og hefur leikið með Valencia frá árinu 2017 en þar áður var hann í herbúðum Juventus. Hann á einn leik að baki með brasilíska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert