Barcelona kaupir varnarmann til baka

Marc Cucurella, til hægri, í leik með Eibar gegn Barcelona …
Marc Cucurella, til hægri, í leik með Eibar gegn Barcelona á síðustu leiktíð. AFP

Spánarmeistarar Barcelona staðfestu í dag að þeir hafi endurheimt varnarmanninn Marc Cucurella frá spænska liðinu Eibar.

Cucurella, sem er 20 ára gamall, var í láni hjá Eibar á síðustu leiktíð. Eibar nýtt sér ákvæði í samningi félaganna til að kaupa hann og greiddi fyrir hann 2 milljónir evra. Hins vegar hafði Barcelona möguleika á að kaupa leikmanninn að nýju og það hefur nú gert það og þarf að greiða 4 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Cucurella er vinstri bakvörður sem skoraði tvö mörk í 33 leikjum með Eibar á síðustu leiktíð. Hann hefur ekki spilað neinn leik með aðalliði Börsunga en 54 leiki með varaliði félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert