Viðar Ari Jónsson lék stórt hlutverk í sigri Sandefjord á Kongsvinger í norsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld, 1:0.
Viðar hóf leikinn á varamannabekknum en var skipt inná á 67. mínútu. Á 79. mínútu lagði hann upp sigurmark Sandefjord fyrir Pontus Engblom.
Sandefjord stendur þar með vel að vígi í öðru sæti deildarinnar með 33 stig eftir fjórtán umferðir, tveimur stigum á eftir toppliði Aalesund. Fimm stig eru í næsta lið sem er Raufoss. Emil Pálsson er einnig í röðum Sandefjord en hann hefur verið frá æfingum og keppni síðan í desember eftir að hafa slitið hásin.