Pablo Punyed, einn af Íslandsmeisturum KR-inga í knattspyrnu 2019, lék í nótt sinn fyrsta landsleik í nokkurn tíma fyrir heimaland sitt, El Salvador, og hélt upp á það með því að skora mark.
Pablo, sem lék sinn 24. landsleik og skoraði sitt þriðja mark, spilaði síðast með liði El Salvador í undankeppninni fyrir HM 2018. Hann kom inn í landsliðshópinn fyrir tvo síðustu leiki liðsins í B-deild Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku og kom ekkert við sögu í 1:0 sigri á Montserrat á sunnudaginn.
Honum var skipt inn á á 80. mínútu gegn Dóminíska lýðveldinu í San Salvador, höfuðborg El Salvador, og innsiglaði 2:0 sigur með laglegu marki á 87. mínútu sem má sjá í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
El Salvador vann sinn riðil með 15 stigum af 18 mögulegum og tryggði sér með því sæti í A-deildinni fyrir næstu keppni.
86' ¡Gol de @LaSelecta_SLV 🇸🇻! ¡Pablo Punyed anotó su primer gol en #CNL ! 🥳#FollowTheDream pic.twitter.com/987i9nXhQg
— Concacaf Nations League (@CNationsLeague) November 20, 2019