„Ég er ekki pabbi hans“

Brasilíumaðurinn Neymar.
Brasilíumaðurinn Neymar. AFP

Thomas Tuchel þjálfari franska meistaraliðsins Paris SG var ekki ánægður með háttarlag Brasilíumannsins Neymars.

Neymar hefur verið að jafna sig eftir meiðsli en það sem fór fyrir brjóstið á þjálfaranum var að Brasilíumaðurinn skellti sér til Madridar í vikunni  til að fylgjast með Davis Cup í tennis.

„Ég er ekki pabbi hans og ég er ekki lögga,“ sagði Tuchel á fréttamannafundi í dag að aðdraganda leiks Paris og Lille í frönsku 1. deildinni sem fram fer annað kvöld.

Líklegt er að Neymar snúi aftur inn í lið Paris SG en hann hefur ekkert spilað með liðinu frá því í byrjun október.

„Ég er þjálfari hans og hann hefur æft vel. Líkaði mér að hann fór í flugi til Madridar? Nei alls ekki. En er þetta þess virði að ég verði brjálaður yfir þessu? Nei. Ef allt fer vel þá getur hann spilað á morgun. Hvort hann byrji inná eða komi inná sem varamaður kemur í ljós,“ sagði Tuchel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert