Tókst ekki að endurheimta toppsætið

Maximilian Arnold fagnar sigurmarki sínu gegn Borussia Mönchengla­dbach í dag.
Maximilian Arnold fagnar sigurmarki sínu gegn Borussia Mönchengla­dbach í dag. AFP

Borussia Mönchengla­dbach mistókst að endurheimta toppsætið í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið tapaði 2:1 á útivelli gegn Wolfsburg.

Breel Embolo jafnaði metin fyrir Mönchengla­dbach tveimur mínútum eftir að Xaver Schlager kom heimamönnum í Wolfsburg yfir snemma leiks. Það var svo í blálokin í uppbótartíma þegar Maximilian Arnold tryggði heimamönnum dramatískan sigur og kom í veg fyrir að gestirnir endurheimtu toppsætið sem þeir misstu til RB Leipzig í gær.

Leipzig vann 3:0-útisigur á Düsseldorf í gærkvöldi og er því á toppnum með 33 stig, tveimur stigum fyrir ofan Mönchengla­dbach. Dortmund er í þriðja sætinu með 29 stig og þýsku meistararnir í Bayern München í því fjórða með 27 stig að loknum 15 umferðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert