Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er genginn í raðir kýpverska knattspyrnufélagsins APOEL á lánssamningi frá Rostov í Rússlandi. Gildir samningurinn út leiktíðina.
Framherjinn hefur verið atvinnumaður frá árinu 2009 þegar hann gekk til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Lillestrøm frá ÍA.
Þá hefur Björn einnig leikið með Wolves, Molde, FC Kaupmannahöfn og Rostov á sínum atvinnumannsferli en hann á að baki 17 landsleiki fyrir A-landsliðið þar sem hann hefur skorað eitt mark.
APOEL er í fjórða sæti kýpversku 1. deildarinnar með 28 stig eftir fyrstu fimmtán leiki sína en félagið er og sigursælasta lið Kýpur með 28 deildartitla, en það hefur orðið meistari undanfarin sjö ár. Þá er liðið komið í 32 liða úrslit Evrópudeildarinnar þar sem það mætir Basel frá Sviss í febrúar.
✍️ Συμφωνία δανεισμού με @rostovfc για Björn #Sigurdarson (@bsigurdarson). #APOELFC
— APOEL FC (@apoelfcofficial) January 22, 2020
ℹ️ https://t.co/pQXYKeozGZ pic.twitter.com/WPw5NTcFd3