Barcelona upp fyrir Real

Lionel Messi skoraði og lagði upp.
Lionel Messi skoraði og lagði upp. AFP

Barcelona fór upp fyrir Real Madrid og upp í annað sæti spænsku 1. deildarinnar í fótbolta með 2:0-sigri á Sevilla á útivelli í dag. 

Ousmane Dembélé kom Barcelona yfir á 29. mínútu eftir undirbúning frá Lionel Messi og það var Messi sem gulltryggði sigurinn með marki á 85. mínútu og þar við sat. 

Barcelona er nú með 53 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Atlético Madrid sem á tvo leiki til góða og einu stigi á undan Real Madrid sem á einn leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert