Ótrúleg endurkoma hjá Leipzig

Leikmenn Leipzig fagna ótrúlegum sigri.
Leikmenn Leipzig fagna ótrúlegum sigri. AFP

Leipzig vann í kvöld ótrúlegan 3:2-sigur á Borussia Mönchengladbach í þýsku 1. deildinni í fótbolta. Gladbach komst í 2:0 en Leipzig neitaði að gefast upp. 

Jonas Hoffmann kom Gladbach yfir strax á 6. mínútu með marki úr víti og Marcus Thuram tvöfaldaði forskotið á 19. mínútu og var staðan í hálfleik 2:0. 

Christopher Nkunku minnkaði muninn fyrir Leipzig á 57. mínútu, áður en Yussuf Poulsen jafnaði á 66. mínútu. Leipzig var ekki hætt því varamaðurinn Alexander Sørloth skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og þar við sat. 

Leipzig er í öðru sæti með 50 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Bayern München. Gladbach er í áttunda sæti með 33 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert