Zlatan sá rautt í sigri

Rafael Leao gulltryggir 3:1-sigur.
Rafael Leao gulltryggir 3:1-sigur. AFP

AC Milan vann 3:1-útisigur á Parma í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag, þrátt fyrir að Zlatan Ibrahimovic hafi fengið beint rautt spjald á 60. mínútu.

Ante Rebic kom AC Milan yfir á 8. mínútu og Franck Kessié bætti við marki á 44. mínútu. Zlatan Ibrahimovic lét svo reka sig út af fyrir orðaskipti við dómara leiksins á 60. mínútu og Parma minnkaði muninn sex mínútum síðar með marki frá Riccardo Gagliolo.

Þrátt fyrir mikla pressu frá Parma var það Milan sem bætti við marki í uppbótartíma þegar Rafael Leao skoraði eftir undirbúning frá Diogo Dalot og þar við sat.

Milan er nú með 63 stig í öðru sæti, átta stigum á eftir Inter Mílanó sem er í toppsætinu.

Zlatan Ibrahimovic brást illur við rauða spjaldinu.
Zlatan Ibrahimovic brást illur við rauða spjaldinu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert