Í liði vikunnar í Rússlandi

Arnór Sigurðsson er að spila vel í Rússlandi þessa dagana.
Arnór Sigurðsson er að spila vel í Rússlandi þessa dagana. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson var valinn í lið vikunnar í rússnesku úrvalsdeildinni hjá vefmiðlinum WhoScored í vikunni.

Arnór átti mjög góðan leik fyrir félagslið sitt CSKA Moskvu þegar það vann 2:0-heimasigur gegn Rotor Volgograd um síðustu helgi en hann lagði upp fyrra mak liðsins fyrir Chidera Ejuke.

Salomon Rondon skoraði annað mark CSKA Moskvu í síðari hálfleik en CSKA Moskva er í fjórða sæti deildarinnar með 46 stig, jafn mörg stig og nágrannar þeirra í Lokomotiv Moskvu.

Arnór hefur leikið nítján leiki í rússnesku úrvalsdeildinni á tímabilinu þar sem hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú mörk fyrir liðsfélaga sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert