Celtic tryggði sér í dag deildabikarmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna með því að vinna nágranna sína í Glasgow City, 1:0, í hörkuleik.
Caitlin Hayes skoraði sigurmark Celtic á 25. mínútu með þrumuskalla eftir aukaspyrnu Söruh Harkes.
María Catharina Ólafsdóttir Gros sat allan tímann á varamannabekk Celtic í dag.
Þetta er hennar fyrsti titill með Celtic eftir að hún gekk í raðir liðsins frá Þór/KA í sumar.