Gæti misst af HM í Katar

Kyle Walker gæti misst af HM í Katar.
Kyle Walker gæti misst af HM í Katar. AFP/Lindsey Parnaby

Knattspyrnumaðurinn Kyle Walker gæti misst af heimsmeistaramótinu í Katar vegna meiðsla, en hann gekkst undir aðgerð á nára í vikunni.

Walker þurfti að fara af velli vegna meiðslanna er hann og liðsfélagar hans í Manchester City unnu 6:3-heimasigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Ekki er víst hve lengi hann verður frá vegna meiðslanna, en ljóst er að þátttaka hans á heimsmeistaramótinu er í óvissu.

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, tilkynnir hópinn fyrir HM þann 20. október næstkomandi. Fyrsti leikur Englands á HM er gegn Íran 12. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert