Skagamaðurinn skoraði – naumt hjá West Ham

Gianluca Scamacca fagnar sigurmarkinu.
Gianluca Scamacca fagnar sigurmarkinu. AFP/Bruno Fahy

Danska liðið Silkeborg vann afar sannfærandi 5:0-heimasigur á FCSB frá Búkarest í Sambandsdeild karla í fótbolta í dag.

Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborg og skoraði fjórða mark liðsins á 58. mínútu. Skagamaðurinn fór af velli á 76. mínútu.

Stefán Teitur Þórðarson skoraði fyrir Silkeborg.
Stefán Teitur Þórðarson skoraði fyrir Silkeborg. Ljósmynd/Alex Nicodim

Í sama riðli vann enska úrvalsdeildarliðið West Ham nauman 1:0-útisigur á Anderlecht frá Belgíu. Ítalski framherjinn Gianluca Scamacca skoraði sigurmark West Ham á 79. mínútu.

West Ham er með fullt hús stiga á toppi riðilsins, Anderlecht er í öðru sæti með fjögur stig, Silkeborg í þriðja með þrjú og FCSB á botninum með eitt stig.

Önnur úrslit í leikjunum sem hófust 16:45:
Sivasspor – Ballkani 3:4
Pyunik – Zalgiris 2:0
Dnipro-1 – Vaduz 2:2
Slovacko – Nice 0:1
Lech Poznan – Hapoel Be‘er Sheva 0:0
Molde – Shamrock Rovers 3:0

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert