Kom inn af bekknum í sigri

Dagur Dan Þórhallsson í búningi Orlando.
Dagur Dan Þórhallsson í búningi Orlando. Ljósmynd/Orlando City

Orlando City vann góðan útisigur á Philadelphia Union, 2:1, í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt.

Martin Ojeda og Ivan Angulo skoruðu mörk Orlando í leiknum en bæði komu þau á fyrstu 10 mínútum leiksins. 

Dagur Dan Þórhallsson byrjaði á varamannabekk Orlando en kom inná á 85. mínútu.

Orlando hefur byrjað tímabilið ágætlega en liðið er í fjórða sæti austurdeildarinnar með átta stig eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert