Stórsigur Englendinga

Wayne Rooney og Gary Neville fagna einu af mörkum Englendinga.
Wayne Rooney og Gary Neville fagna einu af mörkum Englendinga. AP

Englendingar unnu Íslendinga 6:1 í síðasta leiknum í Manchestermótinu í Englandi. Staðan í leikhléi var 3:1 og gerðu heimamenn þrjú mörg til viðbótar í þeim síðari og hefðu hæglega getað gert enn fleiri þannig að segja má að íslenska liðið hafi verið heppið að tapa ekki stærra. Heiðar Helguson gerði mark Íslands á 42. mínútu.

Frank Lampard skoraði fyrsta mark Englendinga og Wayne Rooney bætti tveimur mörkum við í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik skoraði Darius Vassell tvö mörk og Wayne Bridge eitt.

Victoria Beckham, eiginkona Davids fyrirliða Englendinga, á áhorfendapöllunum með Romeo …
Victoria Beckham, eiginkona Davids fyrirliða Englendinga, á áhorfendapöllunum með Romeo son sinn. AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert