Chelsea ætlar að fá miðjumann

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea.
José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea. AP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir á heimasíðu félagsins í dag að líklega geri hann tilraun til að kaupa miðjumann þegar leikmannamarkaðurinn opnar eftir áramótin. Mourinho segir að þar sem ljóst er að Scott Parker verður frá vegna meiðsla næstu vikurnar og Chelsea spili 14-16 leiki í janúar og febrúar þá sé nauðsynlegt að fjölga miðjumönnunum í hópnum. Mourinho segir að Parker hafi gegnt mikilvægu hlutverki í liði Chelsea þó svo hann hafi ekki fast sæti í liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert