Karfan.is greinir frá því að Mostafa hafi ekki staðið undir væntingum að mati forráðamanna Hamars en hann lék 8 leiki með liðinu og skoraði 12 stig að meðaltali. Hamar er á botni deildarinnar með 2 stig en Ágúst Björgvinsson tók nýverið við þjálfun liðsins af Pétri Ingvarssyni. ">

Leiðir skilja hjá Hamarsmönnum og Mostafa

Þýski leikmaðurinn Raed Mostafa mun ekki leika fleiri leiki með úrvalsdeildarliði Hamars úr Hveragerði í Iceland Express deildinni í körfuknattleik karla. Karfan.is greinir frá því að Mostafa hafi ekki staðið undir væntingum að mati forráðamanna Hamars en hann lék 8 leiki með liðinu og skoraði 12 stig að meðaltali. Hamar er á botni deildarinnar með 2 stig en Ágúst Björgvinsson tók nýverið við þjálfun liðsins af Pétri Ingvarssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert