[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 18.3.2010
Íslandsmót framhaldsskólasveita 
Skák.is Íslandsmót framhaldsskólasveita í skák 2010 hefst sunnudag 28. mars nk. kl. 14 og er fram haldið mánudag 29. mars kl. 18. Teflt er í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Skákhöllinni Faxafeni 12. Keppnisfyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður, hver… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Yvonne Buschbaum kveðst vera karlmaður í kvenmannslíkama.

Yvonne Buschbaum kveðst vera karlmaður í kvenmannslíkama. AP

Íþróttir | mbl.is | 22.11.2007 | 09:05

Keppinautur Þóreyjar Eddu skiptir um kyn

Yvonne Buschbaum frá Þýskalandi hefur á undanförnum árum margoft verið keppinautur Þóreyjar Eddu Elísdóttur á stórmótum í stangarstökki. Þær mætast ekki aftur því Buschbaum hefur ákveðið að hætta keppni og gerast karlmaður.

Buschbaum er 27 ára gömul og hlaut bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum árið 2002. Hún segir á heimasíðu sinni að meiðsli í hásin hafi gert sér þá ákvörðun að hætta keppni léttari. En hún muni fljótlega hefja hormónameðferð þar sem hún stefni að því að fara í kynskiptaaðgerð.

„Ég hef árum saman haft það á tilfinningunni að ég sé í röngum líkama. Þeir sem þekkja mig, átta sig á því. Mér finnst ég vera karlmaður í kvenmannslíkama. Ég bið fólk um að sýna þessari ákvörðun minni skilning og virðingu," segir Buschbaum á heimasíðu sinni.

Heimasíða Yvonne Buschbaum

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars