
Jakob Jóhann Sveinsson. mbl.is/Golli
Sjö ára biđ á enda
„Skýringarnar á ţessum framförum eru margar,“ sagđi Jakob Jóhann Sveinsson, sundmađur úr Sundfélaginu Ćgi, sem hreinlega sprakk út á Íslandsmeistaramótinu í sundi í Laugardalslaug um helgina. Jakob Jóhann bćtti eigiđ met í 200 m bringusundi um ţrjár sekúndur, um 1,3 sekúndur í 100 m bringusundi. Um leiđ varđ hann fyrstur Íslendinga til ţess ađ synda 100 m bringusund á skemmri tíma en einni mínútu, kom í mark á 58,91 sekúndu.
Árangurinn í 100 m bringusundinu er annar besti tími í Evrópu í greininni á ţessu sundári sem miđast viđ 1. ágúst og jafnframt annar besti árangur Norđurlandabúa og 16. besti tími Evrópubúa frá upphafi vega. Norđurlandametiđ á Svíinn Alexander Dale Oen, 58,14. „Ég hef horft til ţess frá árinu 2002 ađ komast undir eina mínútu í 100 m bringusundi,“ sagđi Jakob Jóhann spurđur út hversu lengi hann hafi horft til ţess ađ brjóta einnar mínútu múrinn.
Jakob Jóhann hjó nćrri Norđurlandameti Danans Chris Christiansens í 200 m bringusundi sem sett var fyrr á ţessu ári. Ađeins munar 55/100 úr sekúndu á tíma Jakobs Jóhanns og Norđurlandametinu sem er 2.07,20 mínútur. Árangur Jakobs Jóhanns setur hann í ţriđja sćti á afrekslista Norđurlanda frá upphafi í ţessari grein.
Nánar er rćtt viđ Jakob Jóhann í Morgunblađinu í dag.
Nánar í Morgunblađinu. Smelltu hér til ađ gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni