[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 20.3.2010
Carlsen efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Norski skákmaðurinn Magnus Carlsen náði forystunni á Amber-mótinu með 2-0 sigri á Gelfand í gær. Á meðan gerði helsti andstæðingur hans Úkraínski skákmaðurinn Ivanchuk 1-1 jafntefli við landa sinn Ponomariov. Gelfand, Grischuk og Kramnik eru í 3.-5.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Geir Þorsteinsson formaður Knattspyrnusambands Íslands.

Geir Þorsteinsson formaður Knattspyrnusambands Íslands.

Viðskipti | mbl.is | 5.2.2010 | 12:22

50 milljóna hagnaður hjá KSÍ

Hagnaður af rekstri Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) á árinu 2009 var 50 milljónir króna. Er þetta umfram áætlanir sambandsins. Engar vaxtaberandi skuldir hvíla á sambandinu í fyrsta skipti í rúman áratug.

Rekstrartekjur KSÍ námu 703 milljónum króna samanborið við 870 milljónir króna á árinu 2008. Segir á heimasíðu sambandsins að lækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af lækkun á erlendum tekjum.  Rekstrarkostnaður KSÍ var nánast á áætlun en frávikin voru vegna aukinna landsliðsverkefna og ákvörðunar stjórnar KSÍ að taka á sig aukinn kostnað vegna dómara sem áður féll á aðildarfélögin.

Vaxtatekjur KSÍ á árinu 2009 voru um 53 milljónir króna og innleystur gengishagnaður um 38 milljónir króna sem er mikill viðsnúningur frá fyrra ári.

Styrkir til aðildarfélaga á árinu námu um 96 milljónum króna.  Voru það styrkir úr mannvirkjasjóði, styrkir til félaga vegna barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira. 

Erlend skammtímalán, að upphæð um 600 milljónir króna,  sem tekin voru vegna framkvæmda við skrifstofu- og fræðslusetur KSÍ voru greidd upp á árinu. Handbært fé frá rekstri er um 328 milljónir króna og eigið fé tæpar 234 milljónir króna.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars