[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 20.3.2010
Íslandsmót framhaldsskólasveita - breytt dagsetning! 
Skák.is Íslandsmót framhaldsskólasveita í skák 2010 hefst föstudag 26. mars nk. kl. 19 og er fram haldið laugardag 27. mars kl. 17. Teflt er í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Skákhöllinni Faxafeni 12. Keppnisfyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður, hver… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Landslið Íslands í blaki verða í eldlínunni á Evrópumóti smáþjóða í júní.

Landslið Íslands í blaki verða í eldlínunni á Evrópumóti smáþjóða í júní. mbl.is

Íþróttir | mbl.is | 5.2.2010 | 15:22

Blakmenn ráða landsliðsþjálfara

Apostol Apostolov og Michael Overhage hafa verið ráðnir landsliðsþjálfara kvenna og karla í blaki vegna næstu verkefna landsliðanna sem bæði taka þátt í riðlakeppni Evrópumóts smáþjóða sem fram fer á Möltu í júní.

Apostolov og Overhage þekkja vel til starfanna þar sem þeir hafa sinnt þeim  undanfarin ár.  Blaksamband Íslands segir í tilkynningu að báðir þjálfararnir leggi metnað í störf sín. Búast má við því að æfingahópar fyrir landsliðin verði valdir innan nokkurra vikna.

Riðlakeppnin á Möltu er eina verkefni landsliðanna enn sem komið er á þessu ári en konurnar keppa dagana 11.-13. júní og karlarnir 18.-20. júní.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars