[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 20.3.2010
Carlsen efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Norski skákmaðurinn Magnus Carlsen náði forystunni á Amber-mótinu með 2-0 sigri á Gelfand í gær. Á meðan gerði helsti andstæðingur hans Úkraínski skákmaðurinn Ivanchuk 1-1 jafntefli við landa sinn Ponomariov. Gelfand, Grischuk og Kramnik eru í 3.-5.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
SA og SR.

SA og SR. mbl.is/Friðrik

Íþróttir | mbl.is | 6.2.2010 | 21:00

SR upp að hlið SA

SA og SR mættust á Akureyri í kvöld en leikurinn var lokaviðburður opnunarhátíðar Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ. Hart var tekist á á svellinu og fór SR með sigur af hólmi 8:4 og komst þar með upp að hlið SA með 22 stig en Björninn hefur 19 stig. Egill Þormóðsson skoraði þrennu fyrir SR en „Lurkurinn“ Rúnar Rúnarsson skoraði 2 fyrir SA.

Mörk/stoðsendingar SA: Rúnar Rúnarsson 2/0, Jón Benedikt Gíslason 1/2, Jóhann Már Leifsson 1/0, Orri Blöndal 0/1, Josh Gribben 0/1.

Mörk/stoðsendingar SR: Daniel Kolar 2/3, Egill Þormóðsson 3/0, Arnþór Bjarnason 1/2, Þórhallur Viðarsson 1/2, Svavar Rúnarsson 1/0, Steinar Páll Veigarsson 0/1

SA hleypti spennu í leikinn með því að skora fyrstu tvö mörkin í síðasta leikhlutanum og minnka muninn í 5:4. SR landaði hins vegar öruggum sigri með því að skora síðustu þrjú mörk leiksins.   

Gestirnir úr Reykjavík hafa yfirhöndina 5:3 eftir tvo leikhluta af þremur. SR skoraði tvívegis undir lok annars leikhluta á aðeins mínútu kafla en liðið nýtti sér vel þegar SA missti tvo menn út af í kælingu. 

SR komst tvisvar yfir í leiknum í fyrsta leikhluta en SA var þó sterkara liðið. Að loknum fyrsta leikhluta var staðan 2:2.

Mikil og hatrömm barátta er í deildinni um að hreppa sæti í úrslitakeppninni og sigur í dag þýðir mikið fyrir hvort lið.  Þrjú stig fást fyrir sigur og hvert lið á aðeis þrjá leiki eftir svo nú verður barist upp á líf og dauða í hverjum leik.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars