Bjart framundan hjá KA í blakinu
Í blakinu áttust KA og Þróttur Reykjavík við á laugardaginn í karla- og kvennaflokki. Gulklæddir heimamenn gátu glaðst eftir góðan feng dagsins en KA vann báða leikina. Norðanmenn eru því áfram í fínum málum í báðum flokkum en KA er á toppi deildarinnar í karlaflokki og búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í kvennaflokki.
Karlaleikurinn fór 3:1 þar sem KA var mun sterkara liðið. Heimamenn byrjuðu með miklum látum og rúlluðu tveimur fyrstu hrinunum upp 25:15 og 25:13. Í næstu hrinu sýndu Þróttarar sínar betri hliðar og með flottri baráttu slökktu þeir á heimamönnum og unnu mjög örugglega 14:25. KA var svo sterkara liðið í lokahrinunni og vann 25:21.
Kvennaliðin spiluðu í kjölfar karlanna og þar var boðið upp á hörkuleik. KA marði 3:2 sigur eftir að hafa komist í 2:0. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppninni en þangað eru HK, Fylkir og Þróttur Neskaupstað öll komin.
Í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag er rætt við Sigurð Arnar Ólafsson formann blakdeildar KA um gang mála hjá félaginu sem stefnir á sína fyrstu titla í 18 ár.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni
