Stjarnan krækti í oddaleik gegn HK

Stjörnumenn fögnuðu öðrum sigrinum í röð í kvöld.
Stjörnumenn fögnuðu öðrum sigrinum í röð í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári

Oddaleik þarf til að knýja fram úrslit á Íslandsmótinu í blaki karla þetta vorið því Stjarnan lagði HK, 3:2, í fjórða úrslitaleik liðanna í Ásgarði í Garðabæ í kvöld.

HK hafði unnið tvo fyrstu leikina og stefndi í að vinna titilinn annað árið í röð en Garðbæingar hafa nú jafnað metin í 2:2 í einvíginu.

Stjarnan vann fyrstu hrinuna í kvöld, 25:23, en HK sneri leiknum sér í hag með því að vinna næstu tvær, 25:19 og 25:20. Stjarnan vann þá fjórðu, 25:22, og þar með þurfi oddahrinu til að fá fram úrslitin. Þar höfðu Garðbæingar betur, 15:11.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert