Vignir: Dauðakippir í okkur

„Það eru smá dauðakippir í okkur,“ sagði Vignir Hlöðversson, uppspilari og fyrirliði Stjörnunnar, eftir 3:2 sigur liðsins á HK í fjórða úrslitaleik liðanna í Mikasadeild karla í blaki í gærkvöldi.

Vignir og félagar hafa komist með bakið upp við vegg í síðustu tveimur leikjum, lent undir en náð að sigra engu að síður og nú er staðan jöfn og hreinn úrslitaleikur á laugardaginn. „Við viljum þetta svo mikið enda búnir að bíða nokkurn tíma eftir þessum titili sem verið er að keppa um,“ sagði hinn margreyndi Vignir ánægður í leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert