HK skellti Þrótti með breytt lið

Frá viðureign HK og Þróttar Nes á Íslandsmóti kvenna í …
Frá viðureign HK og Þróttar Nes á Íslandsmóti kvenna í blaki í Fagralundi í kvöld. Ljósmynd/HK

HK vann Þrótt Nes í þremur hrinum gegn engri í fyrsta leik keppnistímabilsins í Mizunodeild kvenna í blaki í Fagralundi í Kópavogi í kvöld. 

Bæði liðin voru í kvöld að mestu skipuð ungum leikmönnum og var ekki laust við að nokkuð óöryggi einkenndi leikinn. Stigahæstar í leiknum voru þær Guðbjörg Valdimarsdóttir með 12 fyrir HK og María Rún Karlsdóttir með 13 stig fyrir Þrótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert