Sara og Egill unnu á Akranesi

Sara Högnadóttir sigraði í meistaraflokki kvenna.
Sara Högnadóttir sigraði í meistaraflokki kvenna. mbl.is/Árni Sæberg

Egill G. Guðlaugsson úr ÍA og Sara Högnadóttir úr TBR sigruðu í einliðaleik í meistaraflokkum karla og kvenna á Atlamóti ÍA í badminton sem fram fór á Akranesi um helgina en það var þriðja mótið í Dominos-mótaröð BSÍ á þessu keppnistímabili.

Egill G. Guðlaugsson sigraði Atla Jóhannesson úr TBR í úrslitaleiknum í meistaraflokki karla, 21-16 og 21-18.

Sara Högnadóttir vann Margréti Finnbogadóttur úr TBR í úrslitaleiknum í meistaraflokki kvenna, 21-11 og 21-4.

Í tvíliðaleik karla sigruðu Atli Jóhannesson og Daníel Thomsen úr TBR en þeir unnu Birki Stein Erlingsson og Róbert Þór Henn úr TBR í úrslitum, 15-21, 21-11 og 21-15.

Sigurvegarar í tvíliðaleik kvenna voru Elín Þóra Elíasdóttir og Rakel Jóhannesdóttir úr TBR en þær unnu í úrslitum Margréti Finnbogadóttur og Söru Högnadóttur úr  TBR, 21-12 og 21-14.

Í tvenndarleik sigruðu Daníel Thomsen og Rakel Jóhannesdóttir úr TBR er þau unnu í úrslitum Egil G. Guðlaugsson úr ÍA og Elínu Þóru Elíasdóttur úr TBR eftir æsispennandi oddalotu, 22-24, 21-11 og 23-21.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert