Sjö mörk í röð hjá Pittsburgh (myndskeið)

Pittsburgh Penquins skoraði sjö mörk í röð á móti New Jersey Devils í NHL-deildinni í íshokkí á þriðjudagskvöldið. New Jersey var yfir í leiknum 3:1 en varð að sætta sig við 8:3 tap.

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá þennan ótrúlega kafla hjá Pittsburg-liðinu sem skartar stjörnum á borð við Rússann Evgeni Malkin og Kanadamanninn Sydney Crosby sem báðir skoruðu í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert